Heim | Íslandsmót iðngreina 2008 |
|
Úrslit Íslandsmóts iðngreina 2008 Íslandsmeistarar ungliða í iðngreinum 2008
Iðnaðarmenn framtíðarinnar verðlaunaðir
Markmið Íslandsmóts iðngreina,
sem Iðnmennt stendur fyrir, er að vekja athygli á iðn- og starfsmenntun, kynna
almenningi iðngreinar – ekki síst ungu fólki – og vekja athygli á þeim
tækifærum sem felast í námi og starfi í iðngreinum. Alls voru á mótinu fulltrúar
um 20 iðn- og starfsgreina, en auk greinanna sem keppt var í voru kynningar á
nokkrum greinum, auk þess sem iðn- og verkmenntaskólar landsins og Samband
íslenskra framhaldsskólanema kynntu starfsemi sína. Íslandsmót iðngreina er undanfari
og forkeppni einstakra keppnisgreina fyrir þátttöku í Euro Skills og World
Skills sem er alþjóðleg keppni iðngreina. Meira var lagt í keppnisgreinarnar nú
en áður og viðfangsefnin í flestum tilvikum veigameiri og meira krefjandi. Markmiðið
með breyttu fyrirkomulagi er m.a. að auka þátttöku atvinnulífsins í mótinu og
efla tengslin milli þess og iðnskólanna.
Líkt og undanfarin ár sá Iðnmennt um almennan undirbúning
og skipulagningu mótsins en að þessu sinni sáu AP almannatengsl um kynningarmál
og framkvæmd viðburðarins. Að skipulagningu keppnisgreina komu Félag hársnyrtisveina,
Félag íslenskra snyrtifræðinga, Félag pípulagningameistara, Félag vélstjóra og
málmtæknimanna, Rafiðnaðarsamband Íslands og IÐAN – fræðslusetur. Aðalbakhjarlar
mótsins voru Samtök iðnaðarins og menntamálaráðuneytið. Mótið í ár var haldið í
tengslum við sýninguna Verk og vit 2008.
Mynd: Verðlaunahafarnir Gunnar Guðjónsson (málaraiðn), Jóhann Geir Úlfarsson (grafísk
miðlun), Arnar Már H. Guðmundsson (ljósmyndun), Jevgenis Gujls (málmsuða), Ásgeir
Arnór Stefánsson (trésmíði). Auk þeirra fengu verðlaun Kristófer Þorgeirsson (pípulögn),
Birkir Sigursveinsson (bifvélavirkjun), Ásbjörn Matti Birgisson (bílamálun),
Reynir Harðarson (bifreiðasmíði), Kristþór Ragnarsson (múrverk), Gústaf Benedikt Grönvold (dúklagningar), Heiðrún
Pálsdóttir (hársnyrting), Gunnar Þórbergur Harðarson (rafvirkjun).
|
| Heim |
| Myndir af mótinu |
| Iðan - Nám og störf |
| Um Íslandsmótið |
| Keppnisgreinar |
| Yfirlit um Íslandsmótið 2008 |
| Velkomin |
| Myndir |
| Tenglar |
| Innskráning |
Seðja hungur keppenda