Skills Iceland

  • Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color

SkillsIceland miðar að því að kynna og efla iðnmenntun á Íslandi og hvetja til alþjóðlegrar vitundar og samstarfs með skipulagningu Íslandsmóts iðngreina og þátttöku í alþjóðlegum mótum af sama toga.

Heim arrow Velkomin
WorldSkills í Kanada

WorldSkills 2009 er heimsmeistaramót iðn- og verkgreina (fyrrum Skills Olympics)

og þar er keppt í öllum hugsanlegum iðn- og verkgreinum bæði stórum og smáum.  

worldskills_1-4.jpg

Fulltrúar Íslands: Þorbjörg - Kristófer - Stefán Ingi

Keppnin er haldin annað hvert ár og er þetta 40.  keppnin sem haldin er. Alls taka um 1000 keppendur þátt í keppninni frá 51 landi. WS er keppni fyrir 22 ára og yngri og stendur keppnin sjálf yfir dagana 2.-5. september. Frá Íslandi verða þrír verðugir fulltrúar sem taka þátt á WS og eiga það öll sameiginlegt að hafa skarað framúr í sínum iðngreinum og eru afburðanemendur. Keppnin krefst mikils undirbúnings og eru íslensku keppendurnir í strangri þjálfun fyrir keppnina hjá þjálfurum sínum og eru að leggja lokahönd á undirbúning­inn. Reynslan sem keppendurnir hljóta er mikil og eykur þekkingu þeirra og reynslu og gerir þá enn hæfari í sínum störfum í framtíðinni 

Fulltrúar Íslands eru:


Þorbjörg Berþórsdóttir 19 ára nemandi í hársnyrtiiðn við Iðnskólann í Hafnarfirði.  Þorbjörg tók einnig þátt á EuroSkills 2008 sem fór fram í Rotterdam í Hollandi sl. haust og náði góðum árangri. Þorbjörg náði þar yfir 500 stigum og var hún tilnefnd til verðlaunanna “Best of Nation” og tók hún við viðurkenningunni frá Þorgerði Katrínu fyrrum menntamálaráðherra í desember sl. 
 

Stefán Ingi Ingvarsson er 19 ára nemandi í rafvirkjun við Iðnskólann í Hafnarfirði og er hann yngstur í hópi íslensku keppenda. Stefán Ingi tók þátt í Íslandsmóti iðnnema 2008 og náði þar glæsilegum árangri aðeins 18 ára gamall. Þrátt fyrir að vera ungur að árum stefnir hann á að ljúka sveinspróf í rafvirkjun á næsta ári.
 

Kristófer Þorgeirsson sem nýlega lauk meistaraprófi í pípulögnum er 21 árs og lauk námi sínu frá Iðnskóla­num í Hafnarfirði. Kristófer er yngsti einstaklingurinn sem lýkur burtfaraprófi í pípulögnum frá IH árið 2005 aðeins 18 ára gamall. Kristófer keppti nýlega á Norðurlandamóti pípulagningarmanna og náði þar góðum árangri og í framtíðinni ætlar hann sér í frekara nám sem tengist byggingariðnaðinum.
 

Þetta er í annað sinn sem Íslendingar senda keppandur á WorldSkills. Keppnin var haldin í Japan 2007 þar sem Árni Már Heimisson keppti í pípulögnum.
 

Heimasíða keppninnar
http://www.worldskills.org/ 
Kynningarmyndband:
http://www.worldskills.org/index.php?http://www.worldskills.org/index.php?option=com_seyret&Itemid=368&task=videodirectlink&id=111
 

Viðburðir

« < February 2012 > »
S M T W T F S
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3

Næstu viðburðir

No events